Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Grashandbolti

Hefur þú einhverntíman spilað handbolta á grasvelli?

Upplýsingar um liðsskráningar

Til þess að finna liðið þitt byrjar þú á að smella á íþróttagrein og næst aldursflokk. Þar inni er hægt að velja um umferðir - stöðu eða lið til þess að sjá nánari upplýsingar um lið, liðsfélaga, tíma- og staðsetningar leikja.

Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi. Kerfið gengur út á sjálfvirka geturöðun. Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.

Opna liðsskráningu


Aldurs- og kynjaflokkar

11 - 12 ára strákar. 
13 - 14 ára strákar. 
15 – 18 ára strákar

11 - 12 ára stelpur. 
13 - 14 ára stelpur. 
15 – 18 ára stelpur.

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

Grashandbolti er mjög einföld útgáfa af venjulegum handbolta, allir geta verið með. 
Fjórir eru saman í liði en mega vera fleiri því fjöldi varamanna má vera frá 0 og upp í 4. 
Ef lið mætir ekki til leiks inna þriggja mínútna þá tapast leikurinn 10-0.

Völlurinn
Völlurinn er minni en venjulegur handboltavöllur 
Liðin hafa skiptisvæði sitthvoru megin við völlinn. 
Útileikmenn mega fara útaf vellinum og inná hvar sem er á skiptisvæðinu en markmaður verður að fara inná völlinn á sérstöku skiptisvæði við enda vallarins. 
Markmaðurinn má þó fara út af vellinum alls staðar á skiptisvæði liðsins.

Leikmenn
Í upphafi leiks eru 4 leikmenn inn á í hvoru liði. 
Skylda er að hafa alltaf einn merktan markmann inn á. 

Markaskor
Helsti munurinn frá venjulegum handbolta er sá að þegar markmaður skorar gildir það tvö mörk. Falleg mörk geta einnig gefið tvö mörk en það er mat dómara hverju sinni. 
Til þess þarf þó að sýna frumleika og sérstaka tilburði. 
Ef lið skorar úr víti gildir það ávallt sem tvö mörk. 

Refsingar
Fyrir gróf brot er hægt að reka útaf. 
Leikmaður sem er rekinn út af þarf að vera út af þangað til liðið hans fær boltann aftur. 
Ef leikmaður fær tvær brottvísanir í sama leik jafngildir það útilokun frá leiknum. 

Leiktími
Leikið er í 1 x 10 mín. Leikurinn hefst með uppkasti dómara. 

Bráðabani
Í bráðabana stendur leikmaður á vítateigslínu og markmörður á marklínu. 
Leikmaður sendir á markvörð og hefur markvörður 3 sek. til að senda aftur á leikmanninn. Leikmaðurinn reynir þá að skora í mark andstæðingsins þar sem eingöngu markvörður andstæðinganna má reyna að varna því. 
Knötturinn má ekki koma við jörðu fyrr en eftir skot leikmanns, annars telst það ekki gilt mark. 
Liðin fá að skjóta til skiptis þar til annað liðið skorar. 

Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi. 
Kefið gengur út á sjálfvirka geturöðun. 
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.