Fara á efnissvæði

Styrkir

Fræðslu- og verkefnasjóður

Fræðslu- og verkefnasjóður

Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Áherslur í úthlutun

Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til:

  • Fræðslu- og forvarnaverkefna sem eru til þess fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan héraðs, félags og/eða deildar. 
  • Þjálfara- og/eða dómaranámskeiða.
  • Verkefna sem stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu héraðs, félags og/eða héraðs.
  • Verkefna og/eða viðburða sem hafa það að markmiði að efla þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða í íþróttastarfsemi.
  • Verkefni sem stuðla að stærðarhagkvæmni og samnýtingu í upplýsingatæknimálum. 
Úthlutun styrkja

Athygli er vakin á því að sjóðurinn styrkir EKKI tækja-, áhalda- og búnaðarkaup, fundakostnað (þ.m.t. veitingar) og almennan rekstur félaga. Styrkur er að öllu jöfnu aldrei hærri en 400.000 kr. Sjóðsstjórn getur þó veitt hærri styrki í undantekningartilfellum.

  • Fræðslu- og forvarnaverkefni hljóta 80% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu. 
  • Þjálfaranámskeið hljóta 50% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu. 
  • Verkefni til varðveislu sögu og menningu hljóta 50% styrks gegn kvittunum með lokaskýrslu.
  • Verkefni tengd áhersluatriðum sjóðsins hljóta 80% styrks. Styrkurinn er jafnan greiddur út við skil á lokaskýrslu, en hægt er að óska eftir útgreiðslu á hluta af styrkupphæð ef þörf er á.
Lokaskýrsla

Umsækjendur sem hljóta styrk þurfa að skila inn skýrslu á ákveðnu lokaskýrsluformi og senda til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. 

Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Fyrri umsóknarfrestur er frá 1. apríl til og með 1. maí og sá seinni frá 1. október til og með 1. nóvember. 

Sækja um í Fræðslu- og verkefnasjóð

Að vori er opnað fyrir sendingu umsókna í sjóðinn 1. apríl ár hvert og hægt að senda umsóknir inn til og með 1. maí. Að hausti opnar fyrir umsóknir 1. október og er hægt að senda umsóknir inn til og með 1. nóvember.

Sækja um

Úthlutanir úr sjóðnum

  • Fyrri umsóknarfrestur

    Alls bárust 82 umsóknir. Styrktar voru 73 umsóknir. Heildarúthlutun er 12.590,713 kr.

    Maí 2025.

     

  • Seinni umsóknarfrestur

    Alls bárust 127 umsóknir. Styrktar voru 116 umsóknir. Heildarúthlutun er 24.179,303kr.
    Nóvember 2024.

     

    Fyrri umsóknarfrestur

    Alls bárust 79 umsóknir. Styrktar voru 61 umsók. Heildarúthlutun er 15.042,619 kr.
    Maí 2024.

     

  • Seinni umsóknarfrestur

    Alls bárust 111 umsóknir. Styrktar voru 88 umsóknir. Heildarúthlutun er 13.963,122kr.
    Desember 2023.

    Fyrri umsóknarfrestur

    Alls bárust 81 umsóknir. Styrktar voru 56 umsóknir. Heildarúthlutun er 6.608.590 kr.
    Maí 2023.

  • Fyrri umsóknarfrestur

    Alls bárust 61 umsókn. Styrktar voru 58 umsóknir. Heildarúthlutun er 10,8 m. kr.
    Maí 2022

    Seinni umsóknarfrestur

    Alls bárust 129 umsóknir. Styrktar voru 105 umsóknir. Heildarúthlutun er 14,2 m. kr.
    Desember 2022.

  • Fyrri umsóknarfrestur

    Alls bárust 119 umsóknir. Styrktar voru 82 umsóknir. Heildarúthlutun er 9,5 m. kr.

    Maí 2021

    Seinni umsóknarfrestur

    Alls bárust 160 umsóknir. Styrktar voru 108 umsóknir. Heildarúthlutun er 10,1 m. kr.
    Nóvember 2021

Heildarúthlutanir

Árið 2024

177

39.221.922 kr.

Árið 2023

144

20.571.712 kr.

Árið 2022

190

25.000.000 kr.