Fara á efnissvæði
26. maí 2026

Mót laus til umsóknar árin 2027 - 2029

Opið er fyrir umsóknir fyrir sambandsaðila UMFÍ og sveitarfélög að sækja um að halda Unglingalandsmót UMFÍ árið 2027 og 2028 og Landsmót UMFÍ 50+ árin 2028 og 2029. 

Næsta Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina og á eftir að úthluta mótsstað á næsta ári. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hrafnagilshverfi eftir mánuð og á Hellu á næsta ári. 

Frestur til að skila inn umsóknum um bæði mótin er til 15. september 2026.    

 

Unglingalandsmót UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ er íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er um verslunarmannahelgina ár hvert. Mótið var haldið í fyrsta sinn á Dalvík árið 1992. Næsta mót verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina í samstarfið við Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) og sveitarfélagið Skagafjörð.

Nú er leitað mótshaldara fyrir árin 2027 og 2028.

Mótshaldarar þurfa að gera ráð fyrir um 1.000 – 1.500 þátttakendum og því allt að 5.000 mótsgestum, tjaldsvæðum sem ræður við fjöldann, fjölda viðburða og tónlistaratriðum á hverju kvöldi auk miklum fjölda sjálfboðaliða yfir þessa stóru ferðahelgi.    

Framkvæmd mótsins verður í höndum UMFÍ, þeim sambandsaðila sem tekur mótið að sér og viðkomandi sveitafélagi. 

Athygli er vakin á því að stuðningur viðkomandi sveitarfélags þarf að fylgja umsókninni.  

Umsóknum skal skilað til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. Nánari upplýsingar má fá í síma 568-2929.   
  
Heimasíða Unglingalandsmóts 
Saga Unglingalandsmótsins 
Reglugerð og val á mótsstað 
   

Landsmót UMFÍ 50+ 2028 og 2029

Sambandsaðilar UMFÍ hafa nú kost á því að sækja um að halda Landsmót UMFÍ 50+ árin  2028 og 2029. Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 15. september næstkomandi.  

Mótið er ætlað einstaklingum 50 ára og eldri. Útfærsla mótsins er í höndum móta- og viðburðanefndar UMFÍ og framkvæmdanefndar mótsins hverju sinni. 

Mótið var haldið í fyrsta sinn á Hvammstanga síðustu helgina í júní árið 2011. Næsta mót verður í Hrafnagilshverfi, á Akureyri og Dalvík í lok júní í samstarfi við Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) og sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit.  

Framkvæmd mótsins verður í höndum UMFÍ, þeim sambandsaðila sem tekur mótið að sér og viðkomandi sveitafélagi. 

Athygli er vakin á því að stuðningur viðkomandi sveitarfélags þarf að fylgja umsókninni.  
Vinsælar greinar mótsins eru eru boccía, golf, pútt, frjálsar íþróttir, ringó, bridds og ýmsar fleiri.  

Umsóknum skal skilað til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. Nánari upplýsingar má fá í síma 568-2929.   
  
Heimasíða Landsmóts UMFÍ 50+ 
Saga Landsmóts UMFÍ 50+ 
Reglugerð og vinnureglur mótsins