Skráning hafin á Landsmót UMFÍ 50+
Opið er fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Hrafnagilshverfi, á Akureyri og Dalvík dagana 26. – 28. júní.
Mótið er blanda af íþróttakeppni, alls konar annarri hreyfingu og skemmtun.
Þátttakendur geta valið úr hátt í 20 greinum og skráð sig í eins margar og áhugi er á fyrir eitt verð.
Í boði eru eftirfarandi greinar: Badminton – boccía – bogfimi – brennibolti (opin grein fyrir 20 ára og eldri) – bridds – pílukast – pokavarp – pútt – pönnukökubakstur – ringó – skák – skotfimi – stígvélakast og sund.
Athugið að boccía og ringó eru afar fjölmennar greinar og verður af þeim sökum keppt í Íþróttahöllinni á Akureyri. Golf fer fram á golfvellinum á Dalvík. Aðrar greinar fara fram í Hrafnagilshverfi.
Svona er skráð á mótið
Mótsgjald er 6.000 krónur og er fyrir það hægt að skrá sig í eins margar greinar og fólk langar til að taka þátt í.
Skráning á Landsmót UMFÍ 50+ fer fram í gegnum Abler. Þegar smellt er á skráningarhlekkinn færist þú yfir á vefsíðu Abler.
Ef þú hefur ekki áður notað Abler þarf fyrst að stofna notanda. Að því loknu velur þú það íþróttahérað sem þú tilheyrir og greiðir þátttökugjaldið.
Þegar greiðslu þátttökugjalds er lokið færð þú sendan tölvupóst með hlekk þar sem gengið er frá skráningu í greinar mótsins.
Opnar greinar
Opnar greinar eru fyrir 20 ára og eldri og sumar fyrir alla fjölskylduna. Brennibolti er fyrir 20 ára og eldri, og hjólreiðar líka en fjölskylduhlaup er fyrir alla aldurshópa.
Þátttaka í opnum greinum fyrir þátttakendur undir 50 ára kostar 6.000 krónur. Til að skrá sig í grein þarf að senda skeyti á umfi@umfi.is.
Við skráningu í brennibolta þarf að senda nafn liðs á umfi@umfi.is, nöfn þátttakenda í liðinu og nafn ábyrgðamanns, sem fær sendan greiðsluseðil. Þátttökugjald er 10.000 krónur á lið.
Matar- og skemmtikvöld
Greitt er sérstaklega fyrir miða á matar- og skemmtikvöld sem fram fer laugardagskvöldið 27. júní á veitingahúsinu Vitanum á Akureyri. Matar- og skemmtikvöldið hefur verið afar vinsælt og færri komist að en vilja. Miðar á matar- og skemmtikvöld eru keyptir á Abler. Miðaverð fyrir einstakling er 6.400 krónur.
Ítarlegar upplýsingar um skráningu á mótið og ýmislegt fleira er að finna á vefsvæði mótsins:
Landsmót UMFÍ 50+
Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í eitthvert íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.
UMFÍ heldur mótið með Ungmennasambandi Eyjafjarðar (UMSE) og sveitarfélaginu Eyjafjarðarsveit.
Fjölbreytt dagskrá og setning
Auk keppni verður fjölbreytt dagskrá fyrir mótsgesti. Mótssetning fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri kl. 17:00 föstudaginn 26. júní.
Á Melgerðismelum verður hestamennska og þrautabraut, boðið verður upp á heilsufarsmælingar og á sunnudegi verður fjölskyldufjör í Hrafnagilshverfi.
Gagnlegir hlekkir
Heimasíða Landsmóts UMFÍ 50+