Allar fréttir
09. mars 2026
Iðkendur ÍA læra mjúkar hreyfingar
„Við sjáum fyrir okkur fulla stúku af iðkendum og áhugasömum um sýningafimleika. Þetta er mjög góður viðburður og vinnustofur fyrir alla okkar iðkendur og þá sérstaklega hvetjandi fyrir iðkendur í áhugahópum sem ekki vilja endilega keppa að sjá að það sé hægt að stefna á sýningarfimleika,“ segir Eyrún Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikafélags ÍA.
09. mars 2026
Góð þátttaka á fundi um raddir ungs fólks
Viðburðurinn Raddir ungs fólks fór fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum á föstudag. Viðburðurinn var í framhaldi af sameiginlegum fundi íþróttahéraðanna á Austurland og svæðisstöðva daginn áður. Ungt fólk á aldrinum 15–25 ára tóku svo þátt í kaffihúsaspjalli með ráðafólki um málefni tengd íþróttastarfi og höfðu þau margt til málanna að leggja.
06. mars 2026
Kynntu nýtt fræðsluefni um konur í íþróttum
Nýtt fræðsluefni um konur í íþróttum og verkefni tengt því var kynnt í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal síðdegis í dag. Í kringum 80 manns mætti á kynninguna sem haldin var í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, sem er 8. mars ár hvert. Verkefnið er samstarfsverkefni ÍSÍ, HR, KSÍ og UMFÍ.
06. mars 2026
Stefnumótun: Árangur næst með gleðina að vopni
„Það er gott að geta átt samtal við forvígisfólk í íþróttahreyfingunni og finna saman út úr því hvar bæta má starfið,“ segir Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Ungmennafélagsins Visis í Suðursveit og formaður USÚ. Hann var á meðal rúmlega þrjátíu þátttakenda á fundi um stefnumótun íþróttahreyfingarinnar á Egilsstöðum í gær.
06. mars 2026
Iðkendur læra mikið af dönsku fimleikafólki
„Það er geggjað að fá þessar flottu fyrirmyndir í Verdensholdet í fimleikasalinn. Þau eru svo opin og tilbúin að vera með okkur í öll því sem þarf og ná vel til iðkendanna,“ segir Bergþóra Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri fimleikadeildar Selfoss. Danski sýningahópurinn Verdensholdet kom til landsins í vikunni og hóf hringferð sína á Selfossi.
05. mars 2026
Konur í íþróttum
Frumsýning á nýju fræðsluefni um konur í íþróttum fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal föstudaginn 6. mars klukkan 16:30. Af því tilefni verður haldið útgáfuhóf.
05. mars 2026
Minnum á fundi um stefnumótun
Við höldum áfram vinnunni við sameiginlega stefnumótun íþróttahreyfingarinnar um allt land. Nú fara í gang fundir um allt land, sem marka næstu skref í vinnunni. Fyrsti fundurinn verður á Austurlandi í dag, fimmtudaginn 5. mars á milli klukkan 19:00 - 21:00 og fer hann fram í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
04. mars 2026
Danskir dagar í hreyfingunni
Charlotte Bach Thomassen, formaður dönsku landssamtakanna DGI (Danske gymnastik- og idrætsforeninger), og Jens Otto Størup, framkvæmdastjóri DGI, standa fyrir opnum fundi um stöðu íþrótta, hreyfingar og lýðheilsu í Danmörku og áskoranir og tækifæri.
04. mars 2026
Ertu að skila starfsskýrslu?
Ertu í gírnum til að skila starfsskýrslum í skilakerfi íþróttahreyfingarinnar? Við skil á starfsskýrslum í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ síðastliðin ár hafa ýmsar fyrirspurnir og athugasemdir komið fram, sem rétt þykir að veita athygli. Hér er eitt og annað sem gott er að hafa í huga þegar skráð er í kerfið.