Öllum flokkum
13. október 2026
Skráðum iðkunum fjölgar um 5,8%
Íþróttastarf innan hreyfingarinnar heldur áfram að vaxa. Samkvæmt nýjum tölum ÍSÍ og UMFÍ fyrir starfsárið 2025 voru skráðar iðkanir 191.982, sem er fjölgun um 10.572 frá fyrra ári eða 5,8%. Tölurnar byggja á skýrslum 507 íþróttafélaga innan 25 íþróttahéraða og 34 sérsambanda.
12. október 2026
Hvetja stjórnvöld til að tryggja stuðning við svæðisstöðvar
Sambandsráðsfundur UMFÍ hvetur stjórnvöld til að tryggja áframhaldandi stuðning við uppbyggingu svæðisbundinnar stoðþjónustu við íþrótta- og ungmennastarf um land allt. Undir ályktunina rita stjórn UMFÍ og formenn íþróttahéraða.
12. október 2026
Mikilvægt að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn
Fádæma góður fjöldi mætti á 46. Sambandsráðsfund UMFÍ sem fram fór á Ísafirði á laugardag. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var á meðal gesta fundarins. Hann flutti ávarp og ræddi um fjármögnun og áskoranir og lagði áherslu á mikilvægi þess að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn.
11. október 2026
Fengu Hvatningarverðlaun fyrir fjölbreytt verkefni
Hvatningarverðlaun UMFÍ voru afhent á sambandsráðsfundi UMFÍ í gær. Fern íþrótta- og ungmennafélög hlutu þau fyrir verkefni á borð við samstarfsverkefni íþróttahéraða, áherslur í forvörnum, sameiningu íþróttafélaga til að fjölga tækifærum barna með fötlun í íþróttastarfi og samþættingu skóla og frístundar barna.
10. október 2026
Formaður UMFÍ: Róum í sömu átt
Samstaða og samvinna voru rauði þráðurinn í ræðu Jóhanns Steinars, formanns UMFÍ, við setningu 46. sambandsráðsfundar UMFÍ sem fram fór á Ísafirði í dag, sem er starfssvæði Héraðssambands Vestfjarða (HSV). Aldrei hefur verið jafn góð mæting á fundinn en fulltrúar allra íþróttahéraða landsins mættu á hann.
07. október 2026
Nýtt og flott fræðslusafn HR komið í loftið
„Þetta er okkar viðleitni til að gera góða fræðslu aðgengilega fyrir íþróttahreyfinguna,“ segir Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hún og starfsfólk deildarinnar hefur svipt hulunni af fræðslusíðu á netinu fyrir allt efni sem starfsfólkið hefur framleitt sjálft eða gert í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd, ÍBR og fleiri.
05. október 2026
Mikil spenna fyrir landsmótinu á Hellu
„Það er mikil spenna fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ á Hellu næsta sumar og gleði í loftinu,“ segir Guðríður Aadnegard, formaður HSK. Undirbúningur mótsins hefur gengið mjög vel og er stefnt á að bjóða upp á 22 keppnisgreinar eins og dráttavélaakstur, pönnukökubakstur og fleira ásamt ringó og öðrum klassískum.
02. október 2026
Öllum boðið að taka þátt í að skapa samfélag
Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Fjallað verður um spurninguna á viðburðinum Samtalið, sem fer fram um allt land laugardaginn 10. október að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Öllum er boðið að taka þátt.
02. október 2026
Öflugasta forvörnin felst í samkennd og samtali
„Svarið liggur að einhverju leyti í félagsstarfi og forvörnum. Þeir unglingar sem taka þátt í skipulögðu félagsstarfi eða íþróttum skapa sér vettvang til að iðka nákvæmlega það sem Forvarnardagurinn snýst um: samkennd og samtal.“