Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

28. apríl 2026

Lokað fyrir umsóknir í Skólabúðum UMFÍ

Hátt í 100 grunnskólar um allt land hafa sótt um dvöl fyrir nemendur í 7. bekk í Skólabúðum UMFÍ á næsta skólaári, það er 2026 - 2027. Aðsóknin er afar góð og búið að loka fyrir umsóknir um vist í þeim. 

27. apríl 2026

Bronshátíð fyrirliðanna

Bronshátíð verkefnisins „Við erum öll fyrirliðar“ fór fram í apríl í Dalsskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla í Reykjavík. Á hátíðinni sýndu nemendur skólanna ýmislegt sem þau gerðu í tengslum við verkefnið. 

27. apríl 2026

Helga og Sigurður sæmd starfsmerki UMFÍ

Þau Helga Daníelsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson voru sæmd starfsmerki UMFÍ á héraðsþingi Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) á dögunum. Þau hafa bæði setið lengi í stjórn Skíðadeildar Tindastóls, aðildarfélags UMSS, Sigurður hefur verið formaður deildarinnar og situr Helga í því sæti nú.

24. apríl 2026

Hvatasjóður úthlutar rúmum 14 milljónum

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði í dag rúmum 14,3 milljónum króna til 31 verkefnis um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem auka þátttöku barna og ungmenna, sérstaklega barna með fötlun, barna af tekjulægri heimilum og barna af fjölmenningarlegum uppruna. 

22. apríl 2026

Sjá Landsmót UMFÍ 50+ sem hápunkt heilsueflingar

„Við erum með æfingar fyrir allt fólk 60 ára og eldra sem hefur áhuga á að styrkja sig og bæta næstu sex vikurnar. Okkur langar til að hafa hápunkt þar sem við getum fagnað áfanganum og setjum markmiðið á Landsmót UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit í júní,“ segir íþróttafræðingurinn Bjarney Gunnarsdóttir. 

21. apríl 2026

Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki í ár

Þeir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar, Gunnar Þór Gestsson, formaður UMSS, og og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, skrifuðu í gær undir samninginn um Unglingalandsmót UMFÍ, sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.

17. apríl 2026

Rætt um framtíðarsýn íþróttahreyfingarinnar

Um þrjátíu fulltrúar sérsambanda og íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu tóku virkan þátt á stefnumótunarfundi ÍSÍ og UMFÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Tveir fundir eru á höfuðborgarsvæðinu og verður sá næst þriðjudaginn 21. apríl. Það verður síðasti fundurinn í þessum fasa stefnumótunarinnar.

16. apríl 2026

Fundur um stefnumótun í dag

Stefnumótunarfundir íþróttahreyfingarinnar halda áfram og nú er komið að höfuðborgarsvæðinu. Fyrsti fundurinn á höfuðborgarsvæðinu í núverandi fundarröð verður í dag, fimmtudaginn 16. apríl og sá næsti á eftir verður þriðjudaginn 21. apríl.

16. apríl 2026

Ræddu um aðgerðir gegn brottfalli úr íþróttum

Tæplega fimmtíu þátttakendur mættu á viðburðinn Raddir ungs fólks – samtal við ráðafólk, sem fram fór í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Viðburðurinn hefur verið í gangi síðan í mars og mun standa fram í maí.